Vertu með í gleðinni ;)
25.07.2007 12:54:55 / Íris Þórs

Blómó's back!

Já góðan dag gott fólk. Þá hefur maður loksins nennt að rífa sig upp og skrifa eina bloggfærslu! Það er allt gott að frétta af okkur hnöppunum.. langar aðeins að segja ykkur frá því hvað hefur drifið á daga okkar í sumar.

Tinna er búin að vera að vinna eins og brjálæðingur hjá Sagafilm í sumar.. enda ábyggilega orðin moldrík þar sem hún vinnur fram á rauðanætur og vil ég meina að þetta séu mannskemmandi vinnutímar! Svo er stelpan alltaf dugleg að mæta á Klúbbinn og dansa af sér fæturnar sem er ekkert nema gott mál. Ég held að við þurfum bráðum að taka gott chill á þetta þar sem ég hef ekki hitt hana Tinnu mína aalltof lengi!

Linda mín er á fullu að vinna í Grafarvogskirkjugarði.. hefur engann tíma fyrir gömlu vini sína þar sem nýju-kirkjugarðar-vinirnir eru efst á dagsskrá.. einnig eyðir hún miklum tíma í World Class þar sem hún ætlar að vera ýkt flott þegar við förum saman til Dk 17 ágúst .. sem er eftir 23 DAGA!!! :) þar ætlum við að missa okkur í H&M og fleiri góðum búðum.

Ég er að vinna í Toyota .. æðisleg vinna.. ekkert smá þægilegt að geta verið bara í sínum fötum (ekki ógeðslegu Emmessís fötunum eins og í fyrra) og vinna svona þægilega vinnu! Svo er ég að æfa á fullu frjálsar.. er einmitt að fara að keppa um næstu helgi á Króknum :) Er alveg að fíla þetta í botn enda alveg yndislegt fólk að æfa með mér!  

En ætla ekki að hafa þetta mikið lengra.. Bendi á nýju myndirnar hérna til hliðar og einnig vil ég benda á hina síðuna mína þar sem ég er miklu duglegri að blogga en hérna. www.iristhors.bloggar.is

~*Íris Þórs*~


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 21:25:13 / Linda!

gleðilegt suumar

Hææ lömbin mín:D
þá er bara komið sumar, samkvæmt dagatalinu allavega, kæmi mér nú samt ekki á óvart þótt að það færi að snjóa á morgun eða hinn og daginn eftir það væri svo hitametið í Evrópu slegið.. jáá ég eelska fjölbreytnina á þessu dásamlega landi!
En jææja ég nenni ekki að skrifa meira, nema það að ég er búin að setja þessar 8 myndir sem ég tók í London inná.. haha íkt fáar, og svo setti ég líka nokkrar frá gærkvöldinu þegar við vinkonurnar vorum að borða vooðagóðan mat hjá Thelmu í tilefni ammælisins hennar um daginn;*
og síðast en ekki síst líka nokkrar myndir frá fermingunni hennar Birtu (systur Írisar) en ég og tinna vorum rooosalega duglegar að hella uppá kaffi, setja í uppþvottavélina og auðvitað bara vera sætar:D greaat day girls:D
og nuna eru bara held ég 97 dagar í sigrúnu mína:D Jeeii:D

missubaby;*
En jææja komið yfirdrifið nóg í bili;)
..Yðar einlæga LindaMaría

..& nýji sæti frændii:D

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 18:46:48 / Linda!

Gym Class Heroes - Cupid's Chokehold:D

jæja nú skal sko aaaaldeilis vera bloggað:D nú heyrast eflaust fangaðarlæti frá mörgum tölvusjáum í heiminum því öllum finnst svo gaman að lesa bloggin hennar Liiiiinnduuuuu:D

annars er nu ansi margt buið að gerast í heiminum síðustu daga.. eflaust nokkur hundruð manns búin að deyja úr hungurskorti og alnæmi og malasíu og fleira þannig.. ég er samt ennþá á lífi og bara nokkuð spræk:D
búið að vera þema daga í skólanum okkar.. nánar tiltekið skólhlífardagar, í seinustu viku á miðvikudeginum og fimmtudeginum.. ég sunneva og sigrun ætluðum í box á miðvikudagsmorgninum.. en það féll bara niður af einhverjum sökum.. sem ég var svosem ekkert að græta neitt voðalega mikið.. vil nu ekki fara hræða alla með byssunum minum..;) þannig að við tókum gott bakarístjill á þetta og fögnuðum afmælisdeginum hennar sunnevu;** elska þig ástin mín<3 íhuguðum það að kíkja á klúbbin en ég og sigrun víst ekki komnar með aldur:lol: haha.. og við nenntum ekki einhverju skilríkjaveseni svo við slepptum því bara:lol: hahah..

síðan fórum við í súludans kl.1.. mætti segja að það hafi verið ansi klaufalega sjón.. stóðum okkur samt frekar vel og ég og sigrun mikið búnar að hugsa um það að kaupa okkur súlu svo við getum nu viðhaldið sporunum..;)
um kvöldið fórum við sigrun svo bara að vinna minnir mig nu..

á fimmtudaginn 1.mars gerðum ég og Tinna okkur glaðan dag og fórum í skólaheimsókn uppí rimaskólann okkar og heilsuðum uppá mörtu mjóu, þórunni gangaverð, sóla, íris ísl.kennara, Val sögumann og fleiri góða:D það var rosagaman og allir voða mikið ánægðir að sjá okkur:D ekki skrítið þar sem við vorum fyrirmyndarnemendur.. síðan sátum við og horfðum á einhverja pöddumynd hjá Ninnu og fengum mætingu fyrir það.. sátum aftast talandi allann tímann, og þar sem ég kann nottla ekki að hvísla nema tala þá bara hærra en vanlega þá voru smá læti í okkur.. svo hringdi lika siminn minn og það mætti segja að við hefðum verið með svoldið mikið læti í þessum tíma meðan allir aðrir voru voða stillir..;)

síðan fórum við uppí skóla og fljótlega aftur heim til tinnu þar sem planið var að baka en í staðinn fékk ég að horfa á tinnu breyta herberginu sínu úr svínastígu í hreina höll..:haha: síðan leið bara dagurinn og svo var
Glæsiball borgó um kvöldið..


það var alveg voðavoða gaman á því og ekkert smá flott og mikil vinna lagð í þetta..
Helga Braga veislustjóri, við áttum líka gott spjall um kjóla:lol: og svo kom Bubbi og fór alveg á kostum, get svo svarið það að hann tók Öll uppáhaldslögin min:D svo mér leiddist það nú ekkiiii:D síðan vorum við alveg að fýla okkur í drasl að dansa edrú.. haha:D það er alltaf jafn mikið flipp:D

á föstudeginum vaknaði ég svo og fór og sótti tinnu (sem minnti mig virkilega mikið á hóru þá) hahaha ekki illla meint þú veist það;*:D og skutlaði henni heim og eitthvað.. svo kom thelma og við skelltum okkur í 3:40 bíó í tilefni þess að sambíóin voru 25 ára:D jeei til hamingju bíó:D og fórum á music and lyrices, eða eitthvað:D fannst hun alveg ljóómandi fín:D svo vorum við bara aðeins að tjilla og gera okkur sætar.. áður en við fórum til Evu að hitta stelpurnar og elda saman..

við vorum svo allar bara rólegar um kvöldið, nörtuðum í nóakropp og ís og lentum akkurat á þarna i know what you did last summer.. oj hvað hun er ógeðsleg..:$ og vorum allar að sofna/sofnaðar yfir henni svo það var bara heim í bólið eftir hana..

þurfti lika að vakna kl.9 á laugardeginum til að fara vinna með Írisi minni og HelguÁ. uppí smárlind á einhverjum Brunch-i því sparisjóður hafnafjarðar og rvk voru víst að sameinast..8| holy moly i know:D en það gekk nu alveg voða vel:) svo fór ég heim og skellti mer í sturtu og skrapp svo aðeins með Thelmu aftur í smáralind.. við reyndar báðar voða mikið að spara vegna útlandaferða okkar eftir minna en mánuuuð:D ég->london og hun->danmörk:D
svoo fór ég heeim og gerði mig sæta fyrir vinnuna aftur.. Hugo Boss með einhverja voðafina tíksusýning og fleira uppí kringlu um kvöldið.. þar sem við vorum að þjóna og lentum í því SKEMMTILEGA atviki að þurfta bera alllt stjörnutorgið í burtu svo stólarnir og borðin væru ekki fyrir!!!.. og þurftum svo að endurraða því uppá nýtt!!.. Gosh.. vorum eitthvað að glensa um að við þurftum nú að teygja (vá kann ekki að skrifa það:/) eftir allt þetta og eitthvað voða fyndið:haha: vöknum svo bara aaallar með brjálæðar hassperrur í höndunum.. nema nottla íris íþrótta freak:D en við hefðum þá betur tekið okkur nokkrar mínútur og teygt aðeins á í staðin fyrir að vera dreeepast í höndum og löppunum í gær og í dag:D haha..

en svo skelltum við vinnualkarnir, ég sunneva sigrun sif iris jens gunni og tinna okkur á klúbbin um hálf2 þegar við vorum búin þarna að vinna.. þar gekk þó aðeins erfiðara að dansa edrú því mikið óskaaplega var ég ekki að fýla þessi lög.. öll yfir 10 mínútur á lengd og bara dreeeep leiðinleg.. þannig að ég og sunneva sátum bara við borðið sofandi og sötruðum vatnið okkar:D haha..:*

voðalega var svo gott að sofaaaa á sunnudeginum:D skellti mer í mesta letiskap í heeimi og lyfti ekki litla fingri allan daginn, nema til þess að éta:D haha.. kíkti svo um kvöldið til thelmu minnar þar sem við lágum bara uppí rúmmi í tölvunni og að horfa á sjónvarpið allt kvöldið.. duttum inní góðar samræður við Adda um Mortal Kombat.. sem er sko alveg geggjuð spennu og bardaga mynd sem er ekki nema svona 20 ára gömul og lofar voða góðu!!.. og nei ég er ekki að vera kaldhlæðin:lol: en við thelma ætlum einmitt að taka mortal kombat maraþon á þetta næstu helgi..:D

já ég held maður verði nú seint svikin af þessari mynd..;)

En núna er svo bara ný skólavika byrjuð:$ oooh.. en ég get þo huggað mig við það að næsta helgi verður eflaust skemmtileg.. hugsanlega hittingur hjá BestaBorðinu á föstudaginn.. og laufey einnig ein heima og svona..;)

en ég þarf að fara undirbúa mig undir sjónvarpsglápið mitt mikla.. er svo sátt við skjá einn að vera með alveg 3 fráábæra þætti svona í röð á mánudögum.. o.c, heros og csi..:D við hötum það nú ekki..;) hehe..
En veriði bless í bili og ég vil ekkert vera gera ykkur abbó en ég er að fara á OXFORD STREET að veeersla eftiiir..28 daaaga:D i liiike it alooot:D


YKKAR LINDA MAAAARÍA:D<3


» 16 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 18:02:45 / Linda!

hallohallohallohallo


hæhæ..:D
jææja langaði bara að skella inn nokkrum vel völdnum línum hérna enda margt og mikið skemmtilegt búið að gerast síðan seinast:D

Um seinustu helgi skelltum við krakkarnir okkur uppí sumarbústað, thelma krissi laufey siggi dagbjört maggi jette eva arni og stulli.. eg kom reyndar bara á laugardeginum, sem virkaði reyndar fínt alveg fyrir mig.. fékk að fljóta með þóru kæró og tildu litu:D það var mjöög skemmtileg bílferð.. þær alveg að kæfa mig úr beikonsnakkslykt, en eg læt svoleiðis nu ekki á mig fá:D

en allavega bústaðurinn var geggjaður og gaman að kynnast þessum strákum þara;) thelma áttaði sig á því í þessari ferð að það er líka hægt að fara í sleik við stelpur, og var hun alveg rosalega sátt við það eins og flestir fengu að sjá:lol: haha dúllan mín, hef aldrei séð hana svona full:D það var yndislegt og svo áttum við laufey jette og eva þessa dásamlegu bílferð heim þar sem við sungum allar hástöfum.. allavega ég:haha:

annars var tinna að hringja í mig rétt áðan og segja að við stelpurnar, sigrun, sunneva sif og hun værum að fara þjóna á nasa kl.hálf 7.. og ég hélt að klukkan væri bara 5 eða eitthvað þannig að ég ætlaði að vera rosa nett á því og blogga eitthvað voða langt.. en nei þá er klukkan 6.. þannig að ég þori nu ekki að hafa þetta mikið lengra nuna.. þarf að fara klæða mig í svarta búninginn og gera mig sæta.. þótt það verði nú ekki erfitt;):lol:

en ætla þá bara að enda þetta með mynd af Helga og Guðjóni eitthvað að flippa í skólanum as always:D dúllur:D

Bææ:D
Ykkar... Linda:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 18:05:00 / Linda!

seint kemur sumt en kemur þó..

jæja já það hlaut að koma afþví að ég nennti að blogga.. er að reyna rifja upp tilfinninguna hvernig það var að koma inná þessa síðu og sjá blogg frá íris eða tinnu.. get ekki sagt að ég muni eftir henni.. hvað með ykkur gott fólk?


en ég verð núú endilega að reyna segja eitthvað frá síðastliðnum dögum og vikum úrþví að ég er sest við skrif hér á annað borð:D

  • Besta Borðið hélt matarboð hjá Sif.. Brjálað gaman:D
  • Ásta varð 18 ára stuttu eftir það..
  • Stuttu eftir það varð Ásrún svo líka 18 ára.. til hamingju með það stelpur;*
  • Í dag eigum ég og Sigrún Litla 2 mánaða vinnu ammó hjá BmRáðgjöf:D til hamingju við.. búnar að standa okkur eins og hetjur sigrún:haha:
  • svo langt síðan ég hef bloggað að það er komið alveg voða nýtt og flott dót þarna efst..:P
  • strax kominn 12FEBRÚAR! ég get svo svarið það að ég hélt það væri ennþá 4 eða e-ð, svo heyri ég bara í útvarpinu að það sé 12!!
  • ég og íris fórum í fýlu um daginn..
  • eg get ekki hætt að hugsa um rice crispís kökuna hennar thelmu!
  • ekki buin að borða nammi nuna íí... 10 daga takktakk:D
  • vissu þið að það er hætt að vera 50% afl. af hnetubar i 10-11 á laugardögum?!?! SJOKKINGiknow!
  • öööömmm..
  • er ekki búin að fá mer subway í alveg 4 daga nuna held eg..
  • borgó ball f. svona viku.. það var samt ekkert skemmtilegt..
  • þannig að ég ætla ekki að tala um það..
  • morfís er nuna 22feb á móti FG.. og ef við vinnum það verðum við annaðhvort í 1eða 2sæti:D jeei
  • einnig er glæsiballið svo 1.mars.. spurning um að skella sér á það..:D
  • ég er búin með launin mín, sem voru samt ekki mikil:(
  • svo við þurfum sko að vera duglegar að vinna sigga..
  • ég er búin að borða appelsínur á hverjum degi núna í örruglega svona 6 daga :!:
  • styttist í london ferðina hjá mér og moms:D íí ég er svo spennt:D
  • mæli eindregið með www.topshop.com fyrir alla:D yndisleg síða:D
  • mikið að gera í skólanum og hóft skróplausa vikan min nuna i morgun:D
  • stend mig eins og hetja strax fyrsta daginn..
  • þrátt fyirr mikinn þrýsting frá Adda um "verðskulduð göt"
  • thelma skrópaði samt í morgun:O eitthvað sem gerist aldrei!!
  • heitasta orðið á götunni er það að donna og david séu loksins að fara stunda kynlíf saman í bevó..?

vá ég var búin að gleyma hvað ég er subbulega góð í því að gera svona púnkta!
En jááá Stelpurnar mínar.. Tinna og Íris.. þið viljið eflaust vita hvað er að frétta af þeim líka..:D enda stórskemmtilegar manneskjur þar á ferð..

3
Tinna lenti í bílárekstri núna um daginn og stór og ljótur jeppi drap Ljóta:cry: allir þeir sem þekktu ljóta vissu að það að útlitið segir ekki allt og hafði þessi bíll fallegasta bílahjarta sem ég þekkti! en tóta okkar kom þó heil útúr þessu og grætum við það nú ekki.. tognaði þó í bakinu og hálsinum og eitthvað.. En hún er stór stelpa og lætur það ekki stoppa sig..
Tinna og strákamál er eitthvað sem allir ættu að þekkja en hún lætur veel og þá meina ég VEL til sín taka í þeim málum um þessar mundir og deitar dansara og fleiri góða:lol:
í skólanum eru hún að standa sig ágætlega held ég.. er það ekki tinna min?:D
hún sinnir starfi sínu sem rekstarstjóri vel á aktutaktu og afgreiðir okkur sigrúnu alltaf mjöög vel þegar við komum og leikum við hana í okkar matarhléum:D

1
íris mín.. við vorum í fýlu um daginn í alveg 4 eða 5 daga!.. held það sé perónulegt met hjá okkur er þaggi?:D en við höfum grafið stríðsöxina nuna og tekið upp fyrri sið að tala saman fuult á hverjum degi :D Íris er búin að redda sér sumar vinnu:D og ekki á neinum lélegum stað heldur verður hun að vinna í afgreiðslunni hjá Toyota í sumar:D já hún er snemma í þessu stelpan og vill hafa allt örrugt..;)
við þurfum nú ekki að spurja okkur að því
hvort íris sé að standa sig vel í skólanum enda er það hennar besta svið.. hún var einnig að keppa um helgina og stóð sig mjög vel:D strákamálin hjá stelpunni þessa stundina eru góð en hún er alltaf til í fleiri svo ekki vera feimnir;)

.....

ég sjálf er persónulega mjög góð þessa dagana.. fyrir utan nuna smá hálsóþægindi sem ég er kljást við.. en það laaagast nu bráðum:D ég er búin að vera rosa dugleg í skólanum og er svoleiðis að dúxa íslensku bekkinn minn að ég þori varla að vera tala um það.. seinustu 2 helgarnar minar hafa bara verið helvíti rólegar og Cozy með Thelmu mest megnis.. og ég hugsa að næstu helgar muni vera bara svipaðar þar sem Linda María er í drykkjupásu þessa mánuðina:D og svo er ég bara dugleg að taka til í herberginu minu.. leyfa thelmu að taka til í skápnum minum, sakna systir minnar;* og horfa á BevóSlevó:D

En ég ætla bara slútta þessu að sinni og fara fá mér gulrætur og liggja uppí rúmmi þangað til O.C byrjar:D
Farið vel með ykkur gott fólk og verið ykkur á veikindunum sem virðast vera dugleg að elta okkur uppi.. og þá ekki sigrúnu mina sem vill svo endilega verða veik svo hun þurfi ekki að mæta i skólann:lol: með metnaðarfyllstu mannskjum sem ég þekki;)

En Bless:D
LindaMaríaBirgis.


» 13 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 19:47:48 / Linda!

rosalega er eg dugleg að blogga:D


Hæj aftur:D
ákvað að skrifa bara nýtt blogg.. því hitt var nú ekki svo Hot og frekar stutt.. og ég ætla líka að ávinna mér *klapp* frá adda.. ekki bara hrós!!;)

nú er klukkan að nálgast half 8 á þessum fína miðvikudegi.. og þar sem ég er ekki að vinna þá veit ég bara einhvernveginn ekkert hvað ég á að gera af mér:S nátturlega buin að eyða ómældum tíma í vinnunni uppá síðkastið..
En ég kom heim úr íslenskuprófinu mínu um 3 leytið.. stóð mig nokkuð vel miðað við það hvað ég lærði lítið.. Enda þarf ég nú eeekki mikið að hafa fyrir þessum gáfum mínum:lol:
Horfði svo á BeverlyHills.. alveg ágætisþáttur.. rosalega finnst mér David HOT!!

þarna.. mmm jáá :D hann er allavega nóg til þess að ég fylgist með þáttunum þessa daga sem ég get.. þótt hann sé alveg helvíti væminn með Donnu.. sem mér finnst ekkert svo sæt.. en vó hún er svo MJÓ! má eiga það!;)

Annars á ég varla orð yfir því hvað ég er ánægð yfir því að snjórinn sé að fara.. búinn að vera hérna alveg síðan ég kom heim frá kanó.. sem var 9jan, eða eitthvað.. og vá núna er að koma Febrúar.. kominn tími til að frostið fara og rigningin komi.. plús þá var pabbi að skipta um rúðublað hjá mér í bílnum:D vissi bara ekki að það væri hægt að sjá svona vel út:D takk pabbi;* hah
En við sigrún vorum einmitt að tala um það hvað lífið væri gott í gær.. og spann rigningin og það að snjórinn væri að fara bara eignilega allan hlutann í því..;)

lífsglöðu stelpurnar:D
með flottustu pósu í heimi:D haha lengi búnar að æfa okkur að gera hana í vinnunni.. Enda sjáiði bara þessa fráábæru útkomu:D

Eeeen af öðrum málefnum, Ástapásta mín verður 18.ára á föstudaginn.. og ég vona svo iiinnilega að hún haldi eitthvað uppá það fyrir mig:haha: þetta er búin að vera eitthvað smá vesen og svona.. þar sem maður er svo ungur ennþá og svona þá er erfitt að fá staði eeen hver veit nema guð verði okkur hliðhollur og við getum allað mistígið okkur allasvakalega saman í drykkjunni..eins og planið var nú í byrjun.. Thelma er allavega búin að fá að heyra mikið og ófagurt væl frá mér í dag:D en hún fýlar það svo við erum góðar:D

þaaaannig að ef föstudagurinn fer eins og ég vil.. þá förum við stelpurnar í bæinn og kaupum eitthvað fallegt handa love-u:D.. borðum kannski saman og leikum svo um kvöööldið íkt góðar á því:D;** jeei það væri æði:D

..humrarnirplús..

Siðan er laugardagsplanið mitt að fara með Tinnu minni í bæinn.. og leyfa henni að velja jólagjöf.. þar sem við höfum ekki enn gefið hvor annari jólagjöööf:$ eheh.. af sökum útlandaferða og fleira.. þannig að ég er rosaspennt í það.. það er að segja ef hún hefur tíma í mig konan áður en hún fer að vinna..;)
Svo er BestaBorðs matarboð og djamm um kvöldið heima hjá Siiif.. en enginn strúní gjélla núna svo það er skiljanlegt að stemmingin verði bæld..;) hehe..

Skemmtilegasta BB kvöld sem ég hef upplifað:D
En núna eru kæróar líka leyfðir svo ég er alveg í bobba því ég á svo marga.. Neeeii.. glens:haha: ég og guðný ætlum að vera par þetta kvöldið því hennar alvuru kæró að vinna..
**
já svona endaði þetta nú seinast..;) hehe..
En já það verður örruglega rosa fjör og ég vona bara að yndin mín mæti nú öll.. er þaggi?!:D Birta ætlar allavega að koma.. sem ég er perónulega mjöög spennt í því ég hef ekki hitt hana síðan í ágúst eða eitthvað:D og berglind.. við getum kannski haldið áfram þar sem frá var horfið í sambandi við að æfa stúdents-myndatöku-brosið þitt:D haha.. og svo verður þú Sigrún mín með okkur þarna í anda;**

og talandi um sigrúnu þá var hún að segja mér frá því að hún sé að setja myndirnar sínar frá Kanó á netið.. ykkur finnst það nú örruglega ekkert skemmtilegt.. en ég kætist mjög yfir því þar sem þetta eru alveg yndislegar myndir af okkur útá lífinu og fleira:D hlakka mikið til að sjá þær:D

En við Tinna vorum e-ð að bréfasendast í gær um að við blómó gætum kannski skellt okkur til Danaveldis í sumar einhverntímann og verslað og djammað smá.. Íris?! hver er skoðun þín á þessu.. veist samt þú skýtur þetta pottþétt niður með einhverjum keppnisferðum og þannig:S:| en þá förum við tinna bara einar:D er þaggi tinna.. man nu þegar við vorum að plana einhverja danmerkuferð í níunda bekk eða eitthvað:D haha.. rosalega góðar á því;) en ég meina hver þarf að fara til sólarlanda eða benedorm þegar danmörk er hérna næsta land við.. allavega ekki við.. enda erum við allar brown as a cake nú þegar:D haha..


við verðum að fara leika og plana þetta og klára bleika miðann HELLO!!.. látum það ekki dragast til febrúars..hehe:D

En ætti ég ekki bara að segja þetta gott..
læt fylgja með hérna 2 myndir síðan ég laufey og jette vorum í ruglinu f. eitt bjórkvöld ;) ansi skemmtilegt..


haha ég og jette rosahræddar við grudge:'D

En ég kveð ykkur í Bili kæru lesendur..:D
Takk fyrir mig.. Addi fæ ég Klapp?:haha:noob.jpg
kæróóó;*
Mrs.Birgisdóttir..!


» 20 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 14:27:03 / Linda!

5 línu blogg!! á skilið klapp f. þetta!

blablabla..

Hæbbs:D
Jæja Tinna búin að setja inn myndir frá Partýinu hjá Alfreð.. þegar ég hugsa útí það þá man ég nú ekki eftir því að hún hafi verið með myndavél..:lol: en greynilega úrþví það eru komnar myndir:D ég aftur á móti tók ekki neinar.. lét það alveg eiga sig þetta kvöld..:D
ég var samt að setja inn nokkrar leiðinlegar myndir frá kökuboðinu sem við stelpurnar vorum með á sunnudagskvöldið.. vorum mikið í flippinu með einhverja upptökuvél sem jette komst höndum yfir.. tape this..;) það var rosa mikið fjör:D

ég veit ekki einu sinni afhverju ég byrjaði að blogga þetta blogg.. ég er að fara í skólann aftur eftir 20 mín.. og ég á eftir að læra undir ísl.prófið mitt og sækja sigrúnu.. og plús þá hef ég ekkert að segja:D svo jeei:D mitt besta hingað til..;)

Heyrðu Bææ:D;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 12:27:48 / Linda!

Nei hvað er að sjá..


ég alltaf jafn ógðeslega sæt og falleg!

en eins og glöggir lesendur taka eftir er þessi síða í alveg bullandi niðurríðslu! en það er nú eflaust lítið sem gert verður í þeim máálum..
lífið hefur eflaust aldrei verið jafn busy og núna hjá mér.. skóli,vinna sofa! og alls engar ýkjur, enda finnst mér ég varla eiga neitt félagslíf lengur.. er 5 tíma á dag með sigrúnu litlu í vinnunni, og hún er klárlega það sem heldur mér gangandi..;) haha.. og mér leiðist alls ekkert þetta líf, dungal og rest of the blundz eru alltaf til taks í skólanum og aldrei í lífinu mundi ég kvarta yfir því að vinna með mrs.sigrún small.. eg eeeelska að sofa.. þótt ég fái svo sannarlega ekki nóg af því um þessar mundir.. svo ég hef í rauninni ekkert til að kvarta yfir:D hvernig líður ykkur annrs í lífinu ykkar..?:D

sigrúnu minni eldri gegnur allt í ljómandi haginn í london, búin að fínkemba verslunarsvæðið fyrir mig vænti ég..;) börnin eru að fara vel með hana og kynntist akkurat einni ísl. stelpu sem var að fara á sama tíma sem au-pair þarna.. svo lífið leikur við gullið mitt þar;**

besti vinur okkar og við svo..;*

síðan var morfís uppí skóla í gær.. borgóið vann að sjááááálfsögðu! kepptum á móti kvennó pennó.. var rosalega jöfn og spennandi keppni segji ég fyrir mína parta.. en dæmi nú hver fyrir sig..
mér finnst alltaf morfís miklu skemmtilegri en gettu betur, því þar situr maður bara allan tímann og veltir uppúr vonleysinu hvað maður sé ótrúlega ógáfaður, en í morfís þá er alltaf bara sprell í gangi..;) sem er nett..:D

en dungal og sigmarsdóttir eru væntanlega á hverri stundu, ganga einnig undir nöfnunum thelma og laufey, enda eru við að fara leigja okkur spólu og kaupa bakkelsi ef ég fæ einhverju um það ráðið;) ég er líka komin með mikinn fiðring í magann fyrir kökuboðinu hjá okkur sem verður á sunnudagskvöldið.. namminamm.. rosalega ætla ég að borða allt frá þeim þá:haha:

en ég ætla fara haska mér svo ég þurfi nú ekki að láta þær bíða eftir mér.. og já ég er alveg dottin útúr bevó og finnst það þessvegna ekki skemmtilegt lengur.. sem er hræðilegt! en o.c. er að byrja nuna a mánudaginn:D svo ég fanga því..:D

sjáumst later bitches n' hoes:D
-linda-


..nýja viðhaldið mitt..:*


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 13:04:41 / Linda!

Einkabarnið ég(á heimilinu)!!..næsta hálfa árið..

Hún Sigrún Systir mín elskulegasta er að fara til london núna eftir 4 tima, í HÁLFT ár:O sem au-pair.. Jáá þetta á eftir að verða skrautlegt..
En þeir sem þekka vel til mín eða sigrúnar vita hveru óskaplega góðar vinkonur við erum:haha: hún er í rauninni helmingurinn af mér:D þar sem ég get alveg sagt henni allt og verið svo mikið ég sjálf fyrir framan hana að stundum er bara eins og við séum sama manneskjan..:D haha skemmtilegt það.. og þar sem við eyðum alveg ómældum tíma saman þá má guð vita hversu mikið að einkahúmor við eigum til í safninu:D

En já henni á örrulega eftir að ganga rosa vel þarna úti og krakkarnir eiga pottþétt eftir að dýrka hana:D haha öfunda þau geggjað að fá að búa með henni í hálft ár:D en svo kemur hún heim til mín í endaðan júlí mánuð:D Vííí þá verður sko gleðistund:D en ég fer nottla út til hennar í páskafríinu, að versla:D meðan lobsters stelpurnar mínar verða á strikinu verð ég á oxfordstreet:D jeei:D þannig að um leið og hún fer get ég huggað mig við það að ég fer þarna eftir ca.3 mánuði:D

En já ég á semsagt eftir að sakna hennar alveg óskaplega.. Eeen lítum á björtu hliðarnar, þetta gæti verið í kóreu eða asíu, semsagt það langt í burtu að ég gæti ekkert farið að heimsækja hana, þetta gæti verið heilt ár en ekki hálft! Uumm.. að það væru ekki til símar og tölvur! Ööm já þá er það uppkomin hugsa ég:D

Þannig að ég ætla vera geðveikt bjartsýn og sterk stelpa og reyna sakna hennar bara sem minnst:D hehe:D Anywaaay.. Ég elska þig sigrún mín og hafðu það rosa gott þarna og gangi þér vel:D og svo sjáumst við í brúðkaupinu hjá þér og Harry Prins..;) og ekki verða mér til skammar og kissa einhverja ljóta breta.. hlakka svo til að fá þig heim og halda teboð:lol: haha..:D ELSKA ÞIIIIG;**

jæææja þá er þetta komið:D uss hvað ég á eftir að vera einmanna.. en ég veit að barbívinafélagið á líka eftir að sakna hennar rosa þannig hver veit nema við stofnum bara klúbb..og spilum brids og fleira..;) það gæti nú verið gaman..

en núna er ég komin heim frá Kanarí.. æðiiisleg ferð í alla staaaði:D nenni samt ekki að fara of mörgum orðum um það..;) skrifa bara nokkur stykkorð:haha:

 

 

 

  • "GET YOUR PANTS READY"!!!!!!!:lol:

  • djömmin með Dísu:haha:

  • dansa uppá borðum:$

  • put your hands up for detroit

  • drop it like it's hooooooot

  • músin..:lol:

  • ööömurleg moll..

  • ógeð að sleika hálsinn minn8|:lol:

  • she's the man..besta mynd i heimii:lol: haha

  • pizzur..

  • kokteilar..

  • vodka reeeeeedbull

  • sms frá thelmu:lol: haha:*

  • corny/musli

  • svefn-lepparnir

  • princess 1 and 2:lol:

  • mars ís..

  • og svooo margt margt meira..:D

rooosalega fin ferð í alla staði.. var alveg svona semí sól flesta daga.. nema alltaf einhver skýja breiða.. þannig að tanið varð nu ekkiii mikið..;) geggjað leiðinlegt að fara ur 20 stiga hita yfir í snjókommu,rok og blyndbyl uppí keflavík.. var ekki að fýla þaaað..
síðan er skólinn bara tekinn við.. ætla vera rosa dugleg nuna (eins og alltaf reynar) og vera lika dugleg að vinna.. svo eg geti nu rekið grænu pödduna..;)


eeen ég er farin að kveðjá sigrúnu mína..;* og kaupa nokkrar bækur f. skólann minn.. ætla henda inn myndunum frá kanarí, og nokkrum frá gamlárs..;)

Adioz..Linda María..:|


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 18:35:10 / Linda!

29.Desember 2oo6=D

ÍRIS ÞÓRSDÓTTIR
á afmæææli í dag:D jeei.. loksins fær hún að vera jafn stór og sæt og ég og Tinna:D 17 ára drop dead hot gélla og PLÚS komin í tölu keyrandi manna! Finally..:D veit ekki hversu oft ég hef þurft að hlusta á nöldur,væl og vein um það að vera sú EINA í heiminum sem er ekki komin með bílpróf og það allt:D haha.. en núna eru þau væl útúr sögunni:D ég hafði samt lúmskt gaman að þessu ;*

En húúún íjapíja.. Við Tinna erum nú búnar að þekkja hana í..5ár núna:D jáá takktakk.. þótt að þetta hafi nú ekki byrjað vel þarna  á milli okkar írsar, þar sem hún kallaði mig Belju í 8unda bekk:’D haha.. já mér sárnar enn þegar ég hugsa um þetta:’D og ég man líka eftir einu góðu rifrildi á milli Í&T.. draslinu var bara þrusað í hvor aðra.. En í dag höfum við grafið þetta allt ofan í kistu og einbeitum okkur afþví að vera góðar við hvora aðra, enda allar perlu góðar vinkonur:D og algjörlega tilgangslaust að vera rifja upp slæmar stundir á svona gleðidegi:D:D

Íris litla stundar frjálsaríþróttargreinar á fullu aftur eftir góða pásu í sumar.. er hún farin að hlaupa 4oo metrana á 0,65sek. Vel gert það:D haha..

En við Tinna höfum alltaf lagt mikið uppúr að gera ammóið hennar Írisar sem Best og skemtilegast (þar sem við erum fokking frábærar vinkonur).. þá sérstaklega núna seinast.. veit ekki hvað við vorum lengi að pakka inn öllum pökkunum, föndra þetta riiisakort, blása upp blöðrurnar, baka köku og hendast að kaupa barnakampavín á seinustu stundu! Engu að síður mjöög vel gert hjá okkur þetta Tinna:D en aumingja íris að tinna verður ekki á landinu þetta afmæli.. því allamalla ekki nenni ég að standa í þessu öllu ein...:D þannig að þú heldur bara fyrir okkur eitt lítið afmæli þegar við erum báðar komnar heim Íris og þá gerum við e-ð skemmtilegt f. Þig;*:D

ógeðslega flott mynd sem ég föndraði í gær:D íris með afmælispakkaspöngina:D

 

En ææ ég veit eiginlega ekki hvað ég get sagt meira..:D nema hún íris okkar er æðisleg og takk kærlega fyrir allar stóórskemmtilegu stundirnar sem við erum búnar að eyða saman meðan þú varst sweet sixteen:D:D

Inniiiiilega til hamingju með 17ára afmælið gullið mitt og ég hlakka til að koma í kvöld og heilsa uppá hollendingna og noregsbúana og borða allar kökurnar frá þeim:haha: neeeii.. ég verð mjög pen ég lofa:D
7
-->;*
þínar allra besta vinkonur Linda&Tinna;**
:'D:'D

Síðan á líka Sigurður Jónsson, heldur betur þekktur sem Siggi Jóns afmæli í dag:D:D orðin 18 áára sjálfstæður einstaklingur:haha: eeekki slæmt það;)

sæætii;):*
Til hamingju með afmæælið ástin mín;**


annars er voooðalega lítið að frétta af mér og mínum vegum, 4dagar þangað til við fjölsk. förum til kanarí.. þar afleiðandi styttist líka í London au-pair ferð sigrúnar, en hún fer 10.jan.. daginn eftir að við komum heim:(
tinna er bara ennþá útá flóró.. farin að sakna hennar íkt mikið:( ef þú skyldir lesa þetta drullastu þá til að hringja!.. vinsamlegast:D haha.. ég HEIMTA símtal frá þér ógeðið þitt:D
ég tók kósý dag á þetta í gær.. svaf til hádegis.. eins og ég er orðin roosalega góð í.. þreif svo smá og var bara í töölvunni góðu..:) horfði svo á BeverlyHiiillls<3 síðan bauð ég thelmu í mat..:D maður er svo myndarlegur í eldhúsinu.. þetta var líka í fyrsta skipti sem ég get eldað svona tilbúna pizzu án þess að hún sé óæt!..:D þannig að ég var mjöög hress með það:D
síðan fór thelma að hitta kæró, og ég að hitta minn leynilega elskenda, sigrúnu Litlu. þar sem við erum ekkert búnar að vera vinna, höfum við ekkert hisst lengi lengi og ákváðum því að taka spólutjill á þetta:D:*

Var svo vakin í morgun af skemmtilegri hringingu frá Írisi Afmælisbarni, þar sem hún var fyrir utan.. tilbúinn að sýna mér ökuhæfileikana.. allt fyrir afmælisbarnið og ég dröslaðist í buxur og beint útí bíl! :'D haha.. ennþá dimmt og e-ð:lol: íris litla dúllan mín:D síðan skutlaði hun mer heim aftur í bólið mitt eftir smá keyrslu..;)
svo er ég bara búin að vera þvælast hingað og þangað með SigrúnSys.. endalausar útréttingar og fleira.. vorum að fá okkur evrur og svona:D já ég er að fíla þetta..

svo er thelma væntanlega á hverri mínútu núna.. við ætlum að horfa á spólu.. enda það eina sem við gerum liggur við:D svo fer ég til írsar í kvöld og e-ð rólegt;):D
súgrún&lúnda
Bleee..8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 22:08:35 / Linda!

Glædileg jul og nyt godt ar..


Blómahnapparnir óska landsmönnum fær og nær gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi árum..:haha:

Tinna mín hringdi líka í mig frá flooorida í gær.. og ef ég á að vera algjör dúlla og allt það þá segji ég að sjálfsögðu að það hafi verið besta jólagjöfin mín:D haha..;* sakna þín ógeðslega mikið litla og ég veit það er ógeðslega gaman hjá ykkur öllum þarna úti:D og núna bíð ég bara speeennt eftir næsta símtali eins og þú lofaðir;*
<3<3

En ég og Thelma Dögg tókum okkar velplanaða þorláksmessu-laugarvegs-göngu á laugardaginn:D það var alveg jafn rómó og við vorum búnar að plana:lol: haha..;* síðan gerðist nú eitt ansi skemmtilegt atvik seinna um kvöldið, við vorum alveg íkt einmanna og voru bara að keyra með jólalögin í botni og syngja hástöfum með.. síðan var þessi grenjandiii rigning.. og ég var rosaflippuð og var með hausinn útum gluggann, alveg í þvílíkum fýling að fá dropana framan í mig, síðan keyrir bíllinn f. framan okkur oní riiiiiisapoll og allt bara SLAMM framan í mig!! uuum Jammó (eins og hún R.R vinkona okkar sigrúnar segjir svo gjarnan)

En annars er ég brjáááluð útí skáeinn fyrir að taka one tree hill útaf dagskrá þótt að það sé einhver tvöfaldur loka þáttur af survior..! uss ég er brjáál! en við íris mín erum nú aldeilis búnar að plana kvöldið í staðinn.. verðum að sjálfsögðu að við halda hefðinni og hittast á jóladagskvöld, þótt að Mrs.T.Ó verði ekki með okkur í þetta skipti.. en þá ætlum við að hafa bara spólukvöld.. fá lánaða myndina Love&Backetball hjá Thelmuu og sötra jólaöl og nammi:D

Ætla bara nota tækifærið og þakka kærlega f. mig stelpur mínar og einnig ykkur ég suðaði og suðaði í að gefa mér jólakort, og þið létuð undan:D jeei.. get bara ekkert afþví gert hvað ég eeeeelska jólakort:D
svo takktakktakk f. mig ;**

ætla fara rúlla mér til írisar litlu:D
*LindaJólaBarn*


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 13:50:40 / Linda!

AfmælisBarn Dagsins í Daaaaaag...

.er auðvitað
SIGRÚN BIRGISDÓTTIR
mín elskaða og dáða systir..:D

Jeeei.. hún er 20 ára í dag:D hún er besta systir mín í öllum heiminum (og eina,en óþarfi að nefna það e-ð sérstaklega;))
Hún býr líka yfir þessari ólýsanlegu, geislandi, grípandi fegurð.. sem allir í fjölskyldunni virðast hafa fengið í guðsgjöf:lol:
Sigrún stefnir á það að setja upp stúdentshúfuna á miðvikudaginn, á eftir að klára eitt mjöög erfitt próf núna:D en að sjálfsögðu hef ég óbilandi trú á henni, eins og flestir:D
Okkur systrunum er líka farið að hlakka mikið til Kanarí ferðarinnar okkar fjölsk. sem mun hefjast 2.janúar:D eftir semsagt 15daga:) enda alveg að koma á 7unda árið síðan ég og Sigrún litla fórum saman til útlanda:o hólýmólý!

Eeeen anyway.. Gleðilegan Afmælisdag Litla mín.. og ég ætla sko að sjá til þess að þetta verði geggjaður daaagur:D:D ætla vera íkt góð við þig:haha:
Eeeeelska þig gullið mitt;*****




En úr einu í annað..

hahaha hversu sæt var ég þarna:D
var að finna alveg gott safn af gömlum myndum hérna í tölvunni..:D
þegar maður var bara lítill krúttlegur busi:haha: komið alveg gott 1og1/2 ár síðan það var núna, er þaggi?:D

Eeen mánudagur í dag já, og ekkert venjulegur mánudagur eins og kom framm hér að ofan:D bara 6dagar í jólin.. Vóhóóó!! þetta er ruuugl, ruugl segji ég!
Annars voru Afmælisbörnin Birna (sem átti ammó17.des) og Sigrún að halda uppá tvítugsafmælin sín á Hverfis núna á Laugardaginn:D

þær sætu áður en við lögðum í hann;)

en það var alveg mjöög gaman og velheppnað:D flest allir að drukkna í bjór og varð ölvunin í hámarki, nema nottla hjá mér:haha:

LitluBestuBlómahnapparnirMínir

UnaSætaFrænkaOgÉg

það er nottla til fullt af myndum af þessu kvöldi, hjá sigrúnu,íris og guðný allavega, en það á bara eftir að henda þessu öllu inná veraldarvefinn.. hvet alla eindregið þessvegna að fylgjast með komu mála:D

í gærkvöldi fór ég svo til Tinnu, var búin að vera í matarboði hjá frænku og frænda, ég og Una sofandi í rúmminu og sigrún að svæfa okkur með því að lesa um formúlur og rafeindir og fleira gott.. haha frekar hresst..:D
síðan fór ég beint til tinnulitlu, en þá var hún bara ekkert komin heim, þannig að ég fór að taka til:D jáá hver væri ekki til í að eiga mig sem vinkonu takk fyrir takk:D
en svo komu þær íris loksins og jens meira að segja líka:haha: og þar sem tinna er núna endanlega búin að eignast Ljóta..

þið voruð ekkert búin að gleyma "Ljóta" er það, bláa kassanum með stóru augnum:D
hver gæti gleymt svona gullmola..
en já þá tókum við smá rúnt hingað og þangað og hittum gunna og kolla aðeins og e-ð..
síðan fórum við 3 heim til tippu, og byrjuðum að uppfæra "GulaListann".. haha og var sko allt látið flakka:D
síðan komu sunneva og sigrún til okkar og tinnu fór að útdeila fötum til okkar sem hún tekur ekki með sér út, og löbbuðum við allar út með svona 2 trooðfulla poka:D haha.. yndislegt að sjá þetta:D
síðan skutlaði tinna okkur heeeim;*

vaknaði svo í morgun hress þegar íris hringdi:D fór upp að knúsa afmælisbarnið<3 og gefa henni gjööf og svona:D síðan kom tinna með jólakortið mitt:D:D:D:D haha jeei ég eeelska jólakort, og íris ekki einu sinni halda að þú sérst að sleppa!!! og já ég kvaddi hana vel og lengi:D vá hvað ég á eftir að sakna hennar mikið, í þessar 3 vikur:cry: eeen hún lofaði að hringja:D svo ég bíð spennt við símann:D

Ætla að fara slá botninn í þetta með mynd af sæta brósa mínum síðan um áramótin seinustu.. eins og ég segji, mikið til af gömlum myndum;)

eins og ég segji fegurðin býr í ættinni:haha;*


og svo ég hérna seinustu jól, íkt fersk.. að sjá jólatré í fyrsta skipti..

Lifið Heil Börnin mín..
ykkar eina sanna
Linda María Birgiisdóttir..


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 19:57:19 / Linda!

Last Christmas-Wham<3

Hææ Krakkar:D

 
hahah sjáiði hárið:'D ég er að fýla þetta í botn:D:D
hún Ziara og Laufeey.. freeekar likar:D

og svo líka eitt annað..

 
rosalega skemmtilegt hvað húsið hennar Laubbu er búið að fá mikinn svip eftir að fólkið byrjaði að koma með húsgögnin í það frá eyjum og svona:D skemmtilegt þetta líka..;) en ég man nú hvað þessi vindsæng var að gera það gott.. og er ég buin að sakna hennar miiikið miiikið..;)


en vááááá.. sjáiði þetta hús8| svona verðuru húsið mitt þegar ég verð rík og bý í geðveiku húsi:D ég ætla samt eeekki að setja þetta upp sjálf.. það er örruglega geðveikt leiðinlegt.. læt Tedda bara gera það:D haha þar sem hann er eflaust komin með góðu reynslu nuna:D


thelma dögg dungal alltaf í ruglinu.. það vantar ekki..:lol:

nóg komið að þessum myndum annars.. nú er bara 1 próf eftir, og svo verður það bara rólegheit.. einhvern vinna víst með henni Sigrúnu Litlu minni:D og svo ætla ég að fara kaupa jóólagjafiiir.. víí mér hlakkar svo til:D

Eeeen svo verða þetta Tinnu-Laus jól:(
við höfum nú alltaf átt góðar stundir í desember mánuði síðustu árin.. en ekki verður neitt svoleiðis þetta árið þar sem, hún fer að landi brott nuna..
..nokkrar góðar stundir sem einkenna seinustu jól..:

  • Gleymi seint þegar ég var að mála piparkökur með Bjarti bróðir hennar og smá mælta vini hans..:lol:
  • Þegar við eyddum svona 5 tímum á dag í að föndra jólakort handa öllum.. haha algjörar dúllur:D
  • fórum í bæinn á hverjum einasta degi liggur við..:D
  • alltaf sami góði "Tiger-Jólagjafa-Húmorinn":lol:
  • allur undirbúningurinn f. afmælið hennar Írisar, þá serstaklega núna seinasta..
  • Og Núna verður enginn hittingur 25.des eins og alltaf:| að uppfæra "Gula-Listann" og pæla í áramótaheitunum..;)
  • og enginn Jólagetraun Írisar :cry: sem er ángríns örruglega skemmtilegasti leikur sem ég hef farið í.. og alltaf spurði tinna "Er linda búin að kyssa hann??" :lol:
  • kúra saman að horfa á jólamynd með mandarínur og jólaöl..:D
  • tjill á gamlársdag, og kvöldið sjálft..;*

það er eflaust eitthvað meira, man bara ekki neitt núna.. en já við íris verðum semsagt bara einar þessi jólin því TinnaÓmars ætlar að heiðra Flórída með nærveru sinni þessi jólin í faðmi ættarinn liggur við:D
En ég og Íris mín litla eigum víst eftlaust eftir að skemmta okkur ááágætlega saman, eitthvað sem segjir mér að við eigum eftir að rúnta alveg hvelvíti mikið þann 29.desember, en þá á mrs.þórsdóttir einmitt ammæli.. og fær sitt laaangþráða bílpróf sem hún er búin að vera ansi dugleg að væla um uppá síðkastið:D haha..
Afmlirisar008.jpgJladagur032.jpg
Jladagur033.jpgJladagur023.jpg
ramtin022.jpg
góðar stundir:D

Annars fór ég í bæinn á föstudaginn, alltaf jafn ógeðslega leiðinlegt að vera í bænum þegar maður á engann pening, sérstaklega þar sem Jette keypti e-ð í næstum hverri einustu búð sem við fórum í.. iss.. En já.. ég fékk það orð á mig að kunna öll jólalög, þar sem ég söng hástöfum með sitthvorum lögum íöllum búð:haha: það var rosagaman:D og svo hlakkar mer svo til á þorkláksmessu að fara og labba niðrí bææ:D (Thelma þú svíkur mig ekki:D) mmm..:D vá ég er víst komin í aðeins meira jólaskap en ég áttaði mig á..:S

Svo var ég að taka til í herberginu minu í dag.. og jólaskreytti líka.. nuna er alveg íkt kósý og fínt.. alveg merkilegt hvað manni líður miklu betur þegar það er svona hreynt hjá manni.. Svo pöntuðum við sigrún sys okkur líka hróa pizzu, vorum ekki lengi að ákveða það að okkur langaði í svoleiðis.. og uum bröllurnar á Hróa.. ég gæti lifað á þeim að eilífuuu.. en það er samt örruglega ekkert svo sniðugt því þær eru alveg löðrandii í óhollustu..:$

Eeen ég er farin að undir búa mig undir One Tree Hill.. og hafa það kósý í hreina herberginu mínu:D uuum.. og svo á morgun er fyrsti vinnudagurinn okkar Sigrúnar svo allir að segja gangi okkur vel:D

Eeeeen Heyumst þá hress og syngjandi kát í jólaskapii:D

<3
Linda María..





» 5 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 12:17:10 / Linda!

..það hlaut að koma að því..

Jébb núna eru prófin byrjuð! Og þar af leiðandi ég byrjuð að labba um húsið að leita mér af einhverju að gera, byrjuð að éta ótæpilega, lesa moggann,fréttablaðið og blaðið aftur á bak og áfram, rembist við að finna eitthvað rosamerkilegt til að segja sigrúnu, og trufla hana.. hangi í tölvunni tímum saman, að “glósa”.. ákveð að þrífa herbergið mitt, sé svo að það er heldur ekki nógu skemmtilegt.. næ í jóladraslið mitt en nenni svo ekki að setja það upp.. kveiki á sjónvarpinu og bíííð eftir einhverju skemmtilegu!.. Hringi í írisi á hálftíma fresti þangað til hún bannar mér það.. reyni að lesa e-ð en sofna bara.. horfi á jólamyndir í “pásunum” mínum sem yfirleitt eru bara allan daginn!.. tek mig svo loksins saman í andlitinu og læri smá, plata mömmu þegar hún kemur heim og segji að það hafi gengið rosavel að læra, vakna daginn eftir og drulla a mig í prófinu..!

 

Jeei.. og þótt að fyrsta prófið mitt sé ekki fyrren á mánudaginn þá hef ég strax staðið mig af verki við að gera flest þetta.. Er samt að hugsa um að vera aðeins duglegri núna þetta árið.. enda hef ég bara varla tíma til þess að vera slæpast eitthvað svona, er í prófum alveg dag eftir dag.. og þá þarf ég sko að vera skipulögð! Úff..

 

 



Fæ samt að sleppa við eitt, félagsfræði.. niice.. það var seinasta prófið mitt þannig að ég er búin einum degi á undan:D hehe jess..

 

 



Svo byrjum ég og Sigrún Litla að vinna hjá Bm-ráðgjöf 12des. Og við ætlum sko aldeilis að vera duuglegar:haha: og verða geðveikt ríkar.. verst reyndar að maður fær þá ekki útborgað fyrren í janúar.. en maður þarf að kaupa jólagjafir í des.. haa.. obbobobb.. en ætli það sé ekki bara LánBankinn Mamma EHF.. hef átt ansi góð viðskipti við hann undarfarið..

 

 



Svo er ég líka að fara til útlandaaa.. eftir bara.. 31 dag i dag..:haha: jeei.. með ma+pa og sigrúnu sys.. veei.. við ætlum sko aldeeeilis að vera duglegar að versla þar:D eða ég vona það allavega.. þannig sjitt.. eins gott að ég verði dugleg að vinna..;)

 

 



En planið um helgina, er aðsjálfsögðu að vera bara dugleg að læra:D enda íslenskuprófið á mánudaginn.. þannig að það fer að líða að því að ég fari að henda mér í það að lesa íslenska málsögu! Sem er hræðinlegasta leiðinlegasta bók í heimi! Og svo Snorra-Eddu.. þannig að það stefnir alltí skemmtilega helgi hjá mér(Y)

 

 



Annars er ég svo mikill lúði að ég fór 2svar á rockstar tónleikana..:/ hitti íris á fimmtudaginn þegar hun var búin á æfingu þarna uppí höll.. og við kíktum aðeins yfir.. síðan fór hun að vinna þarna eftir tónleikana, og nuna er hun sko búin að fá eiginhandaráritun hjá öllum, tala við 4 úr houseband, og fá mynd af sér með öllum.. jebb borgar sig að æfa frjálsar krakkar ef þið viljið hitta celeb:D haha..

En já síðan í gær þá voru Thelma,Jette og Laufey að vinna þarna aftur og Ásrún líka, og hún var með miða handa mér ef ég vildi koma, þannig að ég og sigrúnB. Skelltum okkur aðeins þarna:D fengum nottla Vip svalirnar..:D haha.. íris er með sambönd í þessari höll.. svo mikið er víst..:lol: en já svo fórum við bara hjeem.. ég ætlaði reyndar að læra aðeins en sofnaði bara strax..

BlúndZ..;*

 

 



Anywaaay.. ég er farin að læra.. og leggja höfuði í bleyti hvort ég ætti að horfa á the grinch eða polar express..? huumm.. æ ég veit ekki, á hvort sem er eftir að horfa á þær alveg mörgu sinnum fyrir jól þannig að það skiptir nú ekki miklu máli:D

 

Svoo ég kveð bara í bili..:D og gangi öllum rosaaleega vel að læra:D

Lindajólabarn<3


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 18:44:06 / Linda!

Laufey í Símanum; Æææ ég verð eignilega að hætta, við vorum að lenda í árekstri :'D:'D

haha þessi skemmtilegu orð bunaði Laufey mín útúr sér á fimmtudagskvöldið, þegar við lentum í þessum skemmtilega árekstri..:D en bara láta ykkur vita þá var ég tæknilega séð í 100% rétti, finnst mér allavega.. en bíllinn var semsagt að koma yfir á mína akrein, sér mig ekki og fer Beint fyrir mig þannig að ég fór aftan á hann.. en engann sakaði og það skiptir nú mestu máli:haha: þannig að þetta var skrambi hresst kvöld..;) vona bara að ég þurfi ekki að borga eeeithvað oof mikið, en það kemur bara í ljós þegar ég næ tali af tryggingunum í vikunni..;) og já takk fyrir góðan áresktur og stuðning thelma og laufey mínar;**

Tinna Ó. náði bílprófinu sína á fimmtudaginn:haha: Jeeeiii:D

Til hamingju ástin mín..;*
hún fékk svo Dævú Matez kaggann sinn í gær,en hann heitir Ljóti:haha: .. og aðsjálfsöðu tókum við þennan góða rúnt.. sem stóð nú alveg yfir íííí..4 tíma jáá..:haha: haha vel gert..;) hún þurfti nottla að æfa sig að taka handbremsubeygjur og svona í hálkunni:D

Ljóti.. og vardekk og allt..:D
en ég,tinna,íris,jens og ari skelltum okkur í kolaportið og fleira gott í dag.. og svo þegar við vorum að keyra heeim, og tinna að sjálfsögðu á svona 90.. þá labbar einhverjir ljótir túristar:evil: yfir götunum og þá þurftum við að stoppa og klesstum ansi harkalaga uppá frekar háan kant.. með þeim afleiðingum að dekk sprakk og einhver öxull brotnaði..:(

 

 

haha eru þið að sjá þetta bláa krútt..:D ég barasta elska hann:D
en já þetta var nú ansi skemmtilegt ævintýri, og við að sjálfsögðu fýluðum það í botn að vera föst á einhverri lítill umferðaeyju á sæbrautinn og allir að glápa og íris byrjaði bara að smella afmyndavélinni:lol: haha..:D
síðan kom svenni að sækja okkur og ljóti litli er eflaust ennþá fyrir utan hjá ríkislögreglustjórnaum í reykjavík þar sem við þurftum að skilja hann eftir! ég vona bara að honum leiðist ekki..:(

 En þannig já tinna mín, þú mátt eiga það að þú er geggjaður ökumaður, búin að keyra í 2 daga og strax búinn að skemma eitthvað:D við köllum það nú ekki slæman árángur, og bjóðum við jens þér velkomna í "klessa á" crew-ið:D en eins og þú veist þá ertu ekki alveg komin inní "aftanákeyrsla- er besta keyrsla" crewið..;);) haha..

en ég ætla setja þessar myndir frá deginum inní BlandÍpoka..;) gaman gaman:D
og svo ætla ég að fara lææææra undir söguprófið mitt, svo ég fái nú kannski ef ég er heppin B+.. haha kennarinn minn er svo gamall að hann gefur ennþá í svona bókstöfum..:lol: mér mundi finnast það dúllulegt, en það er það ekki vegna þess að þetta er örruglega leiðinlegast kennari í heimi, en ég ætla fá að hafa algjöra nafnaleynd á þessu..;)

en já læra.. víí..

haha ég rosa sár og bitur yfir því að þurfa skilja ljóta eftir..:(

Painkiller - Freestylers Ft. Pendulum(Y)
nýja uppáhaldslagið mitt..:D

Linda María Birgisdóttir..

tinna nennir þú að blogga..?:haha:


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
LONDON BABY!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1774 dögum